30.5.2008 | 21:37
Næsta sunnudag er keppt lífsreynslusögum í Landnámssetri.
Nú bíðum við spennt eftir næsta sagnamannakvöldi. Sagnafólkið sem tekst á í lífsreynslu eru þau Unnur Halldórsdóttir, Freyr Eyjólfsson, Gunnar Rögnvaldsson frá Löngumýri og Hákon Aðalsteinsson. Hákon Aðalsteinsson er löngu þjóðþekktur fyrir skáldskap sinn og góða sagnamennsku. Þá hefur Unnur Halldórsdóttir haldið uppi heiðri sagnamennskunnar og kveðskapar hér á Vesturlandi sjálf hótelstýran á Hótel Hamri hér á golfvellinum við Borgarnes. Freyr Eyjólfsson útvarpsmaður af rás 2 mun kveða sér hljóðs sem fulltrúi unga fólksins og síðan kemur Gunnar Rögnvaldsson frá Löngumýri með í slaginn norðan úr landi. Það verður ábyggilega mikið fjör og hörku keppni eins og raunin var síðasta sunnudag. Sagnaskemmtunin fór þá fram úr okkar björtustu vonum og hvetjum við alla sem kunna að meta góðar sögur og keppni að mæta. Sagnakeppin hefst klukkan átta og það verða svo áheyrendur sjálfir sem dæma og velja sögumanneskju kvöldsins.
Um bloggið
Landnámssetur Íslands ehf
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.