28.12.2008 | 23:21
Sameinuð stöndum vér
Nýi menningarsalurinn í Menntaskóla Borgarfjarðar var troðfullur í gærkvöldi þegar Gleðileikurinn um fæðing Jesú Kristi eftir Kjartan Ragnarsson og Unni Halldórsdóttur var þar fluttur í fyrsta sinn. Mál manna er að þarna hafi verið um 500 manns - ef það er rétt eru það fjórðungur íbúa í Borgarnesi. Það var ótrúleg tilfinning að upplifa þessa samkomu sem byrjaði í kirkjunni með bænastund klukkan sex. Þegar komið var úr kirkju var Guðrún Kristjáns, formaður Björgunarsveitarinnar Brákar fyrir utan ásamt félögum og gaf fólki friðarljós sem gengið var með að Menntaskólanum. Leiðin lá niður Himnastigann að Tónlistarskólanum og þar stóðu tenórar á svölum og sungu Heilaga nótt. Gleðileikurinn hófst svo á söng Kammerkórsins undir stjórn Sigurðar Rúnars Jónssonar en auk Kammerkórsins söng Freyjukórinn undir stjórn Zsuzanna Budai og Barnakórar Borgarneskirkju undir stjórn Steinunnar Árnadóttur. 13 leikarar léku í sýningunni sem öll var í bundnu máli. Höfundar texta eru Kjartan Ragnarsson og Unnur Halldórsdóttir. Hugmyndin sem kviknaði rétt eftir bankahrunið virtist galin en...... byrjað var að hringja í menn og fá með í leikinn og allir sögðu já - og allir gáfu allt. ALLIR ótrúlegt og þeir sögðu ekki bara já... heldu mættu til vinnu á kvöldin, það var smíðað, saumað, málað og æft, bæði leikarar og söngvarar. Og meira að segja veðrið var gott eftir beljandi hríð og hvassvirðri undanfarið. Takk Borgfirðingar allir sem tóku þátt og allir sem mættu til að horfa. Við endurtökum leikinn að ári. 27. desember 2009 kl. 18. Það er sunnudagur.
Á þessari mynd má sjá Gísla Einarsson í hlutverki Heródesar og vitringana frá Austurlöndum, en þá léku tveir rektorar og einn skólameistari, þeir Ágúst Einarsson á Bifröst, Ágúst Sigurðsson á Hvanneyri og Ársæll Guðmundson frá menntaskólanum. Á myndinni fyrir ofan eru Jóhannes B. Jónsson og Katerina Inga Adolfsdóttir í hlutverkum Maríu og Jósep. Ég sjálf var svo upptekin af að syngja og horfa í gær að ég tók ekki myndir. En einhverjir hljóta að hafa gert það.. vill sá eða sú vera svo væn að senda okkur nokkrar á landnam@landnam.is
smg
Um bloggið
Landnámssetur Íslands ehf
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.