8.12.2009 | 12:24
Gleðileikurinn Guðdómlegi
Leikararnir sem léku í Hinum Guðdómlega gleðileik um fæðingu Jesú Kristí sem fluttur var í Menntaskólanum í Borgarnesi á þriðju jólum í fyrra komu saman til fyrsta samlestrar í gær mánudaginn 7. desember.
Nánast allir sem voru með í fyrra verða aftur með í ár og er heilmikil tilhlökkun í hópnum. Hugmyndin er að gera þetta allt eins líkast því og gert var í fyrra enda eru jólinn tími hefðanna og engin ástæða til að breyta nokkru. Þó er aldrei að vita nema einhver minni í viðburði líðandi árs bætist við en það ræðst af efnum og aðstæðum.
Hópurinn er semsagt búinn að hittast og nú er bara að dusta rykið af leikmyndinni og búningunum og taka daginn frá.
Nú eins og í fyrra hefst Gleðileikurinn með stuttri helgistund í Borgarneskirkju kl. 18. Að því loknu afhendir Björgunarsveitin blys fyrir utan kirkjuna. Allir ganga svo í blysför niður himnastigan með viðdvöl við Tónlistarskólann þar sem sungin eru jólalög. Gleðileikurinn hefst svo í Menntaskólanum um kl. 19 eða þegar blysförin er komin í hús og fólk hefur komið sér fyrir.
Kórarnir sem taka þátt eru Barnakór Borgarbyggðar, Freyjukórinn og Kammerkór Vesturlands.
Um bloggið
Landnámssetur Íslands ehf
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvaða dag er hátíðin ?
Eiríkur Þór Theodórsson, 22.12.2009 kl. 03:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.